Vissir þú að í gegnum tíðina hafa ákveðnir málmar og eðalsteinar verið tákn hátíðlegustu brúðkaupsafmælanna og þau dregið nafn sitt af þeim. Þannig er 25 ára brúðkaupsafmæli kallað silfurbrúðkaup, 50 ára er kallað gullbrúðkaup og 75 ára afmælið er kallað demantsbrúðkaup.

